Þessi sex íbúða búsetukjarni sem er rúmlega 500 fm reis á met tíma. Það eru 24 horn á húsinu en það er hvorki dýrara né tefur verkið þegar byggt er með byggingarsteinunum frá PAGO. Útveggir hússins með einangrun og allir eldþolnir burðarveggir hússins steypu og járnabindingum voru reistir upp að sperrusteypu á fjórum vikum í mars 2020 gegnum gular og appelsínugular veðurviðvaranir. Í tilboðsfasanum fékk útfærsla þessa húss hæstu einkunn hjá þeim aðilum sem stóðu að úrvinnslunni fyrir bæinn. Byggingarefnið sem eru Durisol kubbarnir frá PAGO Húsum er að 80% hluta endurunnið, það er hljóðdempandi, hefur gott einangrunargildi og er mjög eldþolið.