KOSTIR og sparnaður

Byggingarefnið frá PAGO fer að öllu leyti fram úr kröfum íslenskrar byggingarreglugerðar.

Endingargóð sterk hús.
Hugsunin á bak við þróun Durisol byggingarsteinanna var að skapa hagkvæma, sjálfbæra og endingargóða byggingu. Þróun kerfisins hófst í Evrópu á fjórða áratug síðustu aldar og byggði það á kjarna­hugmynd um orkunýtna og burðarþolna byggingaraðferð sem þjónaði bæði sem varanlegt mót og burðarvirki. Langur líftími bygginga eykur verðmæti þeirra og minnkar þörf á endurbyggingu eða umfangsmiklum viðgerðum. Traust bygging heldur eiginleikum sínum til langs tíma, jafnvel við erfiðar veðuraðstæður. Þetta veitir eigendum aukið öryggi og fyrirsjáanleika í rekstri. Hús sem endast vel eru einnig sjálfbærari lausn fyrir samfélagið í heild. Durisol veggir eru sterkir og hafa staðist mikla fellibyli og þunga jarðskjálfta undanfarna áratugi.

Með notkun Durisol steinanna frá PAGO er hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði. Það má byggja úr þeim í öllum veðrum sem er góður kostur þegar litið er til íslenskrar veðráttu. Einn helsti kostur steinanna er hve auðvelt og fljótlegt það er að byggja úr efninu. Með góðu verklagi getur ein manneskja hlaðið 20 fermetra vegg á 8 tíma vinnudegi.

Það að einangrunin skuli nú þegar vera í byggingarsteinunum þegar þeir eru afhentir á verkstað sparar umtalsverða vinnu sem þarf að fara í þegar sníða þarf einangrun utan á húsið eftir á. Þegar Durisol kubbar frá PAGO eru notaðir við að reisa veggi má reikna með að framkvæmdakostnaður lækki um 20%.

EINANGRUNARGILDI

Útveggir úr Durisol byggingarsteinunum veita framúrskarandi hitaeinangrun. Samkvæmt íslenskri byggingarreglugerð á einangrunargildi útveggjar (U-gildi)

BRUNAÞOL

Efnið er óbrennanlegt og veggir úr steinunum hafa staðfest þriggja klukkustunda brunaþol samkvæmt Evrópustaðli eða REI 180. Þetta veitir aukinn…

HLJÓÐEINANGRUN

Veggir úr Durisol byggingarsteinunum draga á áhrifaríkan hátt úr hávaða frá umhverfinu og einnig hávaða milli rýma innan bygginganna.

NÁTTÚRULEG RAKASTÝRING

Byggingarkerfið er gufuopið og hleypir raka í gegnum sig (rakaflutningur), sem kemur í veg fyrir rakasöfnun og myglu í byggingunum.

BURÐARÞOL

Þegar gengið hefur verið frá vegg í Durisol kerfinu myndar hann sterkt og áreiðanlegt burðarvirki sem stenst miklar álagskröfur og…

MYGLUÞOLIÐ OG ROTNAR EKKI

Durisol byggingarsteinarnir eru að 80% hluta úr steingerðum viði. Viðurinn var meðhöndlaður með eiturefnalausri (none toxic) aðferð

ÚRGANGUR Á VERKSTAÐ

Byggingariðnaður í Evrópu er ábyrgur fyrir u.þ.b. 40% af öllum úrgangi. Umfang úrgangs á byggingarsvæðum minnkar verulega þegar byggt er…

FRAMKVÆMDAKOSTNAÐUR

Ýmsir þættir í framkvæmdaferlinu eru vel til þess fallnir að spara tíma og þar með fjármuni. Það er ekki þörf…

SVEIGJANLEIKI Í HÖNNUN

Durisol hentar fjölbreyttum byggingarstílum mannvirkja, allt frá einföldum einbýlishúsum til stærri bygginga.

FARSÆL REYNSLUSAGA

Fengið var einkaleyfi fyrir Durisol byggingarefninu í Hollandi á fjórða áratug síðustu aldar. Það á sér því yfir 80 ára…

FRÁGANGUR OG LÍFTÍMI

Það er gott hald í steinunum og er upplagt að skrúfa festingar undir klæðningu beint í útvegginn. Það þarf ekki að bolta…

UMHVERFISVÆNT

Byggingariðnaðurinn er ábyrgur fyrir um 40% af auðlindanýtingu jarðar. Durisol er framleitt úr náttúrulegum hráefnum sem eru að 80% hluta…

Durisol

Helsti ávinningur þess að nota Durisol steinana við að byggja er hve auðvelt og fljótlegt það er að reisa húsið og það  sparar tíma. Einnig er kostur að ekki þurfi að nota mót og krana við verkið. Það getur komið í veg fyrir kostnaðarsamar tafir að hægt er að byggja úr steinunum í hvaða veðri sem er. Það er eftirsóknarvert fyrir íslenskar aðstæður og eðlileg afleiðing þess er minni launakostnaður.

Steinarnir eru hlaðnir í vegginn án þess að steypt sé á milli þeirra. Það má líkja hleðslunni við Lego kubba þar sem kubburinn er alltaf settur með miðjuna ofan á samskeyti kubbanna í röðinni fyrir neðan. Það er góð þyngd í steinunum þannig að hleðslan helst vel. Að frauða á milli steinanna til að festa betur er mikið notað.  Mikilvægt er að hleðslan sé tryggð og haldist vel þegar steypu er hellt í vegginn.

Það er fljótlegt að byggja úr steinunum og getur það tekið eina manneskju aðeins um 8 tíma vinnudag að hlaða allt að 25 fermetra vegg. Það að einangrunin skuli vera komin í steinana þegar þeir eru afhentir á byggingarstað er kostur og sparar þá vinnu sem fara þarf í þegar sníða þarf einangrun og festa utan á húsið eftir á. Þegar Durisol kubbarnir eru notaðir má reikna með að kostnaður per fermeter sé um 20% lægri miðað við hefðbundnar aðferðir við steinsteypt hús.