Skemmtileg og vel hönnuð raðhús. Sökklar húsanna eru líka úr byggingarkubbunum frá PAGO og er mjög ákjósanlegt því það gefur möguleika á því að tengja saman í eina heild, sökkla, gólfplötu og útveggi. Þá helst einangrunin óskert utan við steypta kjarnann í veggnum. Veggirnir á milli húsanna eru 25 cm þykkur veggjasteinn (DMi 25/18) og með tveggja centimetra múrhúð sitt hvoru megin, veitir hann yfir 60 dB hljóðeinangrun.