Kröfurnar voru m.a. þær að byggingin þurfti að hafa mikið brunaþol (The Regulatory Reform (Fire Safety) Order 2005 for multiple occupation buildings) og einnig voru gerðar miklar kröfur um að sá hluti byggingarinnar sem neðanjarðar er myndi þola ágang raka í jarðvegi (BS 8102:2009 Code of practice for protection of below ground structures against water from the ground). Þessar tvær kröfur voru megin forsenda þess áð ákveðið var að byggja heimilið með Durisol kubbum.