Útveggir úr Durisol byggingarsteinunum veita framúrskarandi hitaeinangrun. Samkvæmt íslenskri byggingarreglugerð á einangrunargildi útveggjar (U-gildi) að vera 0,40 eða lægra. Útveggir úr byggingarsteinunum frá PAGO veita U-gildi frá 0,358 og allt niður í 0,14. Þetta kemur sér vel í þeirri veðráttu sem  Íslendingar búa við og þá einkum á köldum svæðum þar sem rafmagnskynding er kostnaðarsöm. Eiginleikar efnisins valda því að veggirnir viðhalda varma og hitastig helst stöðugt inni í húsinu. Þetta dregur úr þörf á upphitun og skilar sér í lægri orkukostnaði. Byggingarnar hafa því burði til að vera orkusparandi. Stöðugt hitastig inni eykur vellíðan og dregur úr notkunarþörf á loftræsti- og hitakerfum.