Veggir úr Durisol byggingarsteinunum draga á áhrifaríkan hátt úr hávaða frá umhverfinu og einnig hávaða milli rýma innan bygginganna. Þetta skapar rólegri og þægilegri innivist, hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði eða atvinnuhúsnæði. Þar sem steinarnir eru notaðir í veggi milli t.d. par og raðhúsa veitir 25 cm þykkur veggur með 2 cm múrhúð báðum megin rúmlega 60 dB hljóðeinangrun milli rýma. Góð hljóðeinangrun eykur næði og lífsgæði, sérstaklega í þéttbýli þar sem umhverfis- og umferðarhávaði getur verið mikill. Minni hávaði stuðlar að betri einbeitingu, betri svefni og minni streitu. Veggirnr hafa líka hljóðdempandi áhrif þannig að bergmál er ekki vandamál í Durisol húsum.