Byggingarkerfið er gufuopið og hleypir raka í gegnum sig (rakaflutningur), sem kemur í veg fyrir rakasöfnun og myglu í byggingunum. Dæmi um gufuopin efni eru sérhæfðar múrhúðir, vinddúkar, timbur og steinefni sem anda. Þessi efni eru nauðsynleg fyrir heilsusamlegt inniloft og góða endingu hússins. Jafnvægi í raka stuðlar að betra innilofti. Ef raki kemst inn fyrir kápu Durisol hússins finnur hann sér illa farveg inn í veggin, hann loðir þá við ytra birði veggjarins og þyngdarlögmálið sér um að hann drenar sig sjálfur. Samspil einangrunar, rakastýringar og hljóðeinangrunar  valda því að loftgæði haldast stöðug og rýmin verða þægilegri til daglegrar notkunar.  Gufuopið byggingarkerfi hjálpar til við að halda raka í jafnvægi án þess að treysta eingöngu á vélræna loftræstingu. Þetta dregur úr líkum á köldum, rökum flötum þar sem vatn getur þéttst. Slíkt jafnvægi ver einnig byggingarefni og innréttingar gegn skemmdum til lengri tíma. Niðurstaðan er heilbrigðara og þægilegra inniloft allt árið.