Byggingariðnaður í Evrópu er ábyrgur fyrir u.þ.b. 40% af öllum úrgangi. Umfang úrgangs á byggingarsvæðum minnkar verulega þegar byggt er úr Durisol byggingarsteinunum. Aðieins það magn sem þarf í viðkomandi byggingu plús 3% er afhent á verkstað og það litla sem verður eftir af afsagi má mölva og setja undir gangstétt / innkeyrslu við húsið. Timbur í stífum og timbur sem notað er til að afmarka hurða og gluggaop þegar hlaðið er að þeim, má nota í þakið. Einangrunin er nú þegar í steinunum þegar þeir eru afhentir á byggingarstað, þannig að ekki er þörf á að föndra hana utaná húsið eftirá með tilheyrandi afskurði. Það er þvi flest vel nýtt á staðnum, sem á annað borð fer inn á byggingarsvæðið.  Minni úrgangur á verkstað auðveldar umgengni og eykur öryggi starfsmanna. Færri flutningar á efni draga úr umferð og tilheyrandi mengun í nágrenni byggingarinnar. Þetta getur líka einfaldað skipulag framkvæmda í þéttbýli þar sem pláss er takmarkað. Skilvirk nýting efnis stuðlar að hagkvæmari og umhverfisvænni framkvæmd.