Byggingariðnaðurinn er ábyrgur fyrir um 40% af auðlindanýtingu jarðar. Durisol er framleitt úr náttúrulegum hráefnum sem eru að 80% hluta úr efni sem annars væri fargað. Verksmiðjurnar eru ekki kynntar með jarðeldsneyti heldur er það framleiðslan sjálf sem hitar upp vinnusvæðin. Byggingarsteinarnir stuðla að því að minnka kolefnisspor bæði við framleiðslu, gegnum framkvæmdarferlið og eins á líftíma byggingarinnar. Notkun endurunninna hráefna minnkar álag á náttúruauðlindir og dregur úr úrgangi sem annars færi til urðunar eða brennslu. Lengri líftími bygginga þýðir einnig færri endurbætur og þá minni efnisnotkun til framtíðar. Orkusparnaður í rekstri vegur talsvert í heildar umhverfisáhrifum byggingar. Byggingarefnið hefur hlotið NATUREPLUS.org vottun sem staðfestir að efnið stuðli að: Verndun loftslags, Sjálfbærni og Heilsusamlegri innivist. Byggingar sem endast lengi og eyða lítilli orku hafa jákvæð áhrif á bæði umhverfi og efnahag. Slík mannvirki halda verðgildi sínu betur og eru eftirsótt á fasteignamarkaði. Þetta gerir Durisol að ákjósanlegri lausn til framtíðar fyrir nútíma samfélag.