Fallegt ca 160 fm einbýli á mögnuðum útsýnisstað. Heils árs hús í sveitinni verða sí-vinsælli og það hefur afar marga góða kosti í för með sér að nota Durisol byggingarefnið í þau. Einangrunargildi útveggjanna er það gott að húsin hafa reynst orkusparandi. Það er líka fljótlegt að reisa húsin án þess að hafa byggingarkrana á staðnum. Byggingarsteinarnir geta staðið úti gegnum harða vetur, frost og vætu án þess að minnki gæði efnisins á nokkurn hátt.