Efnið er óbrennanlegt og veggir úr steinunum hafa staðfest  þriggja klukkustunda brunaþol samkvæmt Evrópustaðli eða REI 180.  Þetta veitir aukinn tíma til viðbragða ef eldur kemur upp og minnkar líkur á miklum skemmdum.Hátt brunaþol eykur ekki aðeins öryggi fólks heldur ver það einnig burðarvirki hússins þannig að byggingin getur staðið af sér eld án hruns. Þetta getur skipt sköpum fyrir björgunaraðgerðir og möguleika á endurbyggingu eftir atvik. Óbrennanlegt efni myndar ekki eitraðan reyk og stuðlar því að öruggari rýmingu.