Þegar gengið hefur verið frá vegg í Durisol kerfinu myndar hann sterkt og áreiðanlegt burðarvirki sem stenst miklar álagskröfur og þolir bæði lóðrétt og lárétt álag. Kerfið sameinar styrk steinsteypu við stífni og höggdeyfingu steingerða viðarsteins, sem eykur mótstöðu gegn sprungum og hreyfingum í byggingunni. Þegar byggt er með Durisol er steypa í gólfplötu og milliloftum húsanna látin flæða inn í útveggina, sameinast þeim og læsa þannig hæðunum. Steypa gólfplötunnar sameinast þá steypu sökkuls og útvegg jarðhæðar. Sama aðferð er notuð þegar steypa millilofta er látin flæða inn í útvegginn og sameinast steypu hæðanna fyrir ofan og neðan plötuna og svo koll af kolli.  Samfelld tenging steypukjarnans skapar heildstæða byggingu sem vinnur sem ein eining. Þetta eykur stöðugleika gagnvart jarðskjálftum, vindi og öðrum álagsþáttum. Höggdeyfandi eiginleikar efnisins geta einnig minnkað skemmdir við árekstra eða hreyfingar. Niðurstaðan er örugg og traust bygging sem stenst erfiðar aðstæður.