Ýmsir þættir í framkvæmdaferlinu eru vel til þess fallnir að spara tíma og þar með fjármuni. Það er ekki þörf á byggingarkrönum eða mótum þegar hús eru reist úr Durisol steinum. Þegar litið er til veðurfars og þá sérstaklega vindasamra daga, er það mikill kostur að verk tefjast ekki vegna vinhraða. Það er fljótlegt að fræsa úr veggjum fyrir leiðslum. Einangrunin er í steinunum þegar þeir eru afhentir á verkstað og því er ekki þörf á því að klæða hana utan á húsið eftir á, sú vinna er hefur oft reynst tímafrek og þá stundum vanmetinn vinnuliður. Durisol er hannað sem einfalt byggingarkerfi sem auðveldar og flýtir byggingarferlið. Uppsetning er skýr og skilvirk á verkstað. Styttri byggingartími lækkar launakostnað og flýtir fyrir afhendingu verkefna. Með góðu verklagi hefur einn fagmaður hlaðið um 20 fermetra af vegg á einum 8 tíma vinnudegi. Einfaldara byggingarferli dregur úr þörf fyrir sérhæfðan búnað og unnt er að minnka fjölda fagmanna á verkstað. Að nota Durisol getur skipt miklu máli á afskekktum svæðum eða þar sem aðgengi er erfitt. Skýrir verkferlar minnka einnig líkur á mistökum og töfum á verkstað. Að byggja úr steinunum er afar hagkvæmur kostur og það má búast við um 20% lægri kostnaði á hvern fermeter af vegg miðað við hefðbundinn steyptan vegg.
Recent Posts
Recent Comments
No comments to show.

