Durisol byggingarsteinarnir eru að 80% hluta úr steingerðum viði. Viðurinn var meðhöndlaður með eiturefnalausri (none toxic) aðferð sem gerði hann að léttu grjóti sem var svo heitpressað ásamt bindiefni í steinana.   Byggingarsteinarnir eru ekki viðkæmir fyrir veðurfari og hvorki skreppa saman né þenjast út. Durisol steinarnir eru mjög basískir með pH gildi milli 11 og 12. Þessi eiginleiki og góð rakatýring valda þvi að það skapast EKKI kjöraðstæður fyrir myglu og sveppavöxt í Durisol byggingum. Veggirnir drena sig sjálfir og rotna ekki.  Þetta stuðlar að hreinna og heilnæmara umhverfi. Heilnæmt inniloft er sérstaklega mikilvægt fyrir líðan íbúa og dregur úr ofnæmis- og öndunartengdum vandamálum. Basískt umhverfi efnisins hindrar vöxt örvera sem annars geta valdið skemmdum og heilsufarsvandamálum. Þetta er sérstaklega mikilvægt í röku loftslagi þar sem mygla getur annars verið viðvarandi vandamál. Þar sem efnið rotnar ekki, heldur það styrk sínum án þess að brotna niður með tímanum. Slíkt stuðlar að öruggari og hreinni búsetu til lengri tíma.