Durisol hentar fjölbreyttum byggingarstílum mannvirkja, allt frá einföldum einbýlishúsum til stærri bygginga. Kerfið er auðvelt að laga að mismunandi þörfum og hentar vel fyrir allar stærðir af íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og landbúnaðarbygginga. Með byggingarsteinunum hafa arkitektar og hönnuðir mikið frelsi til að útfæra skapandi og hagkvæmar lausnir. Hæsta bygging úr Durisol er 26 hæða hótel sem reist var í Kanada árið 1983. Það hentar vel að reisa byggingar úr steinunum, bæði á opnum svæðum og einnig þar sem verið er að þétta byggð á þröngum svæðum. Kerfið takmarkar ekki útlit eða form bygginga og gerir kleift að sameina nútímalegan og hefðbundinn arkitektúr að vild. Það má nálgast DWG snið af byggingarsteinunum hér á heimasíðunni og er upplagt fyrir hönnuði að hlaða þeim niður. Það sparar fé og fyrirhöfn að gera ráð steinunum strax í upphafi hönnunarferlis.