PAGO skólinn, námskeið og kennslu‑myndbönd
PAGO skólinn, námskeið og kennslumyndbönd
LÆRÐU AÐ BYGGJA ÚR DURISOL KUBBUNUM.
Námskrá fyrir veturinn 2025–2026 er tilbúin – taktu hentugan dag frá! Hér að neðan eru hlekkir þar sem hægt er að skrá sig á námskeiðin.
Hluti hvers námskeiðs er verklegur og þar gefst þátttakendum færi á að meðhöndla byggingarkubbana. Þá er farið yfir ýmsa eiginleika þeirra eins og brunaþol, þol gegn raka og myglu, hljóðvist og einangrunargildi. Fjallað er um aðferðir við byggingu húsa úr kubbunum og kynntur kostnaður.
25. september 2025 – Reykjavík
Verklegt námskeið og fræðsla um Durisol kubba. Lærðu grunnatriði hleðslu og frágangs.
30. október 2025 – Reykjavík
Fyrir framhaldshópa – dýpri tækni og sérhæfð nálgun á Durisol byggingar.
4. desember 2025 – Reykjavík
Áherslan er á hljóðvist og brunavörn. Verklegt námskeið með sérfræðingum.
22. janúar 2026 – Reykjavík
Skráningarhlekkur verður birtur hér í desember 2025.
19. febrúar 2026 – Reykjavík
Skráningarhlekkur verður birtur hér í desember 2025.
19. mars 2026 – Reykjavík
Skráningarhlekkur verður birtur hér í desember 2025.
16. apríl 2026 – Reykjavík
Skráningarhlekkur verður birtur hér í desember 2025.
12. maí 2026 – Reykjavík
Skráningarhlekkur verður birtur hér í desember 2025.
Myndskeið frá byggingu íbúðakjarna
Hér að neðan má sjá nokkur myndskeið frá byggingu sex íbúða kjarna á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Húsið er ríflega 500 m² og í því eru sex íbúðir ásamt sameiginlegu rými og aðstöðu fyrir starfsfólk.
Allir burðarveggir og útveggir hússins – með einangrun, járnabindingum og steypuhellingu – voru reistir með Durisol byggingarkubbunum frá PAGO á um það bil fjórum vikum. Fyrsti steinninn var lagður í lok febrúar og veggirnir risu í mars 2020 þrátt fyrir gular og appelsínugular veðurviðvaranir.
Myndskeiðin gefa innsýn í verklagið og sýna hvernig hleðsla, járnabindingar og hornakubbar eru unnin. Nánari kennslumyndbönd má finna á vef PAGO eða með því að skrá sig á námskeið.
