Saga Durisol

SAGAN

Durisol eru upprunalegu og fyrstu einangruðu byggingarsteinarnir sem framleiddir hafa verið í heiminum. Það var Hollendingurinn Richard Handl sem sótti um einkaleyfi fyrir framleiðsluaðferðinni árið 1932. Svissnesku félagarnir August Schnell iðnjöfur og arkitektinn Alex Bosshard keyptu einkaleyfið og hófu framleiðslu í Belgíu árið 1937.

Tæknin barst fljótlega til Sviss um Belgíu, þar sem Durisol AG var stofnað í Dietikon árið 1938. Þar hófst öflug vöruþróun sem leiddi til þróunar steinanna í þeirri mynd sem þeir eru í dag. Það var frá þeirri verksmiðju sem byggingarsteinarnir voru seldir í Sviss og einnig til annarra landa í Evrópu. Eftir seinni heimsstyrjöldina uppfylltu steinarnir þá miklu þörf sem var á markaði fyrir ódýrt húsnæði úr traustu byggingarefni. Það þurfti að vera fljótlegt að reisa húsið og var kostur að teymið sem stóð að byggingunum gat að stórum hluta verið ólærðir aðilar í byggingartengdum greinum. Það nægði að þeir væru handlagnir og vel færir um að fylgja fyrirmælum sérfræðings á staðnum.

Í dag eru Durisol byggingarsteinarnir framleiddir í 15 – 20 löndum í 5 heimsálfum. Það hefur sannast gegnum síðustu átta áratugi að byggingarsteinarnir eru afar vandað bygginarefni. Víða um heim standa sterkar byggingar sem staðist hafa tímans tönn og bera vitni um góða nýtingu og styrk efnisins þegar kemur að þeim þáttum sem skipta máli í góðum húsum. Gegnum tíðina hafa margir staðfest að með notkun steinanna megi spara húsbyggjendum 20-30% af kostnaði miðað við önnur hefðbunin byggingarefni. 

PAGO HÚS eru með einkaleyfi á dreifingu og sölu Durisol byggingrsteinanna á Íslandi.

EVRÓPA UM MIÐJA SÍÐUSTU ÖLD

Durisol byggingarsteinarnir voru mikið notaðir við að endurreisa

Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina. Steinarnir hafa sannnað gildi

sitt gegnum þessa átta áratugi sem liðnir eru frá því að vinnsla hófst.

Sagan heldur áfram og í dag er íslenski byggingargeirinn farinn að

nýta sér þetta magnaða byggingarefni.