KOSTIR og sparnaður
Byggingarefnið frá PAGO fer að öllu leyti fram úr kröfum íslenskrar byggingarreglugerðar.
Endingargóð sterk hús.
Hugsunin á bak við þróun Durisol byggingarsteinanna var að skapa hagkvæma, sjálfbæra og endingargóða byggingu. Þróun kerfisins hófst í Evrópu á fjórða áratug síðustu aldar og byggði það á kjarnahugmynd um orkunýtna og burðarþolna byggingaraðferð sem þjónaði bæði sem varanlegt mót og burðarvirki. Langur líftími bygginga eykur verðmæti þeirra og minnkar þörf á endurbyggingu eða umfangsmiklum viðgerðum. Traust bygging heldur eiginleikum sínum til langs tíma, jafnvel við erfiðar veðuraðstæður. Þetta veitir eigendum aukið öryggi og fyrirsjáanleika í rekstri. Hús sem endast vel eru einnig sjálfbærari lausn fyrir samfélagið í heild. Durisol veggir eru sterkir og hafa staðist mikla fellibyli og þunga jarðskjálfta undanfarna áratugi.
Með notkun Durisol steinanna frá PAGO er hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði. Það má byggja úr þeim í öllum veðrum sem er góður kostur þegar litið er til íslenskrar veðráttu. Einn helsti kostur steinanna er hve auðvelt og fljótlegt það er að byggja úr efninu. Með góðu verklagi getur ein manneskja hlaðið 20 fermetra vegg á 8 tíma vinnudegi.
Það að einangrunin skuli nú þegar vera í byggingarsteinunum þegar þeir eru afhentir á verkstað sparar umtalsverða vinnu sem þarf að fara í þegar sníða þarf einangrun utan á húsið eftir á. Þegar Durisol kubbar frá PAGO eru notaðir við að reisa veggi má reikna með að framkvæmdakostnaður lækki um 20%.
EINANGRUNARGILDI
BRUNAÞOL
HLJÓÐEINANGRUN
NÁTTÚRULEG RAKASTÝRING
BURÐARÞOL
MYGLUÞOLIÐ OG ROTNAR EKKI
ÚRGANGUR Á VERKSTAÐ
FRAMKVÆMDAKOSTNAÐUR
SVEIGJANLEIKI Í HÖNNUN
FARSÆL REYNSLUSAGA
FRÁGANGUR OG LÍFTÍMI
UMHVERFISVÆNT
Durisol
Helsti ávinningur þess að nota Durisol steinana við að byggja er hve auðvelt og fljótlegt það er að reisa húsið og það sparar tíma. Einnig er kostur að ekki þurfi að nota mót og krana við verkið. Það getur komið í veg fyrir kostnaðarsamar tafir að hægt er að byggja úr steinunum í hvaða veðri sem er. Það er eftirsóknarvert fyrir íslenskar aðstæður og eðlileg afleiðing þess er minni launakostnaður.
Steinarnir eru hlaðnir í vegginn án þess að steypt sé á milli þeirra. Það má líkja hleðslunni við Lego kubba þar sem kubburinn er alltaf settur með miðjuna ofan á samskeyti kubbanna í röðinni fyrir neðan. Það er góð þyngd í steinunum þannig að hleðslan helst vel. Að frauða á milli steinanna til að festa betur er mikið notað. Mikilvægt er að hleðslan sé tryggð og haldist vel þegar steypu er hellt í vegginn.
Það er fljótlegt að byggja úr steinunum og getur það tekið eina manneskju aðeins um 8 tíma vinnudag að hlaða allt að 25 fermetra vegg. Það að einangrunin skuli vera komin í steinana þegar þeir eru afhentir á byggingarstað er kostur og sparar þá vinnu sem fara þarf í þegar sníða þarf einangrun og festa utan á húsið eftir á. Þegar Durisol kubbarnir eru notaðir má reikna með að kostnaður per fermeter sé um 20% lægri miðað við hefðbundnar aðferðir við steinsteypt hús.
